Velkomin á HAUKA bloggið mitt

Ég er mikill Stuðningsmaður HAUKA í handbolta

01.01.2011 14:17:45 / Haukadís

Gleðilegt Nýtt ár 2011

╔══════════════════ ══════════════════╗
~GLEÐILEGT ÁR OG TAKK FYRIR ÁRIÐ SEM ER AÐ LÍÐA~
╚══════════════════ ══════════════════╝


*¨* Ég óska ykkur 12 mánuði fulla af góðri heilsu, 52 vikur af gæfu,*¨* 365 daga af hamingju, ¸¸ 8760 klukkutíma af ást, 525600 mínútur af vellíðan og 31536000 sekúndur af yndislegu lífi !!!*¨* 2011 verður án efa frábært ár, í það minnsta hjálpumst við að við að gera það gott Knús á ykkur :*



» 1 hafa sagt sína skoðun

12.11.2009 21:47:51 / Haukadís

Nei hæ þú :)

Og velkomin á síðuna mína, síðan mín lifnaði óvart við, ég gæti næstum því óskað ykkur gleðilegra jóla aftur, því það styttist heldur betur í jólin, aðeins 42 dagar til jóla :) ekki slæmt
En ég var ekkert hætt með þessa bloggsíðu sko, tók mér bara ansi langt frí heheh :) Enda nýjasta æði hér á netinu er FACEBOOK hvað annað :) Annars bara ágætt að frétta af mér, fylgist enn með haukunum mínum, vinn eins og brjálæðingur og hef alltaf nóg að gera :)
hafið þið það gott*

kveðja Haukadísin sem var nú á forsíðunni í mogganum á mánudaginn haha, áfram HAUKAR :) :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 16:14:56 / Haukadís

Ég óska ykkur öllum..

Gleðilegra jóla og farsælt komandi ár.

Njótið jólanna
Jólakveðja
Haukadís

http://i214.photobucket.com/albums/cc105/24168/egobox/comments/cat/Christmas/Merry-Christmas-with-tree.gif


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.12.2008 21:20:13 / Haukadís

bara 21 dagar til jóla :)

Já þetta styttist víst allt saman :) og núna eru bara 21 dagar til jóla :) Og bráðum styttist líka í nýtt ár, spáið í það!

En svona það helsta af mér, í gær voru nákvæmlega 2 mánuðir síðan að ég fékk þessa frábæru sjón :)

Seinasta laugardag, bakaði ég 2 sortir af smákökum :) og þær eru að verða búnar :D Ég er líka byrjuð í world class aftur, ásamt því borða ég herbalife sjeika inni á milli. Semsagt reyni að vera dugleg :) 

Svo er leikur annað kvöld, haukar-hk karlar kl.19 á ásvöllum :) og svo eru líka bara 2 aðrir leikir um helgina :)

En ég veit ekkert hvað ég get sagt meir hér, þið sem eruð búin að gleyma hvernig ég lít út, þá fáið þið að sjá uppáhaldsmyndina af mér, tekin í sumar í Leðurbuxunum mínum :)


http://s3.frontur.com/img/3758/20081114234040_3.jpg Ég í Leddaranum á leið á djammið í sumar ´08

og svo þessi sem var tekin á akureyri feb ´08


http://s3.frontur.com/img/3758/20081114233739_2.jpg

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.11.2008 21:33:11 / Haukadís

Já og haukarnir mínir unnu :)

Já Haukarnir mínir unnu seinasta laugardag stjörnuna á útivelli og þar sem ég mætti nú í bleiku og rauðu þá var ég að sjálfsögðu í sjónvarpinu :) hehe En haukastelpurnar stálu sætinu frá stjörnustúlkum eins og staðan er í dag :) klárlega flottastar mínar stúlkur:) En haukastelpurnar unnu sem sagt 27-23 og er semsagt ekkert lið sem er taplaust lengur í deildinni.

Haukastrákarnir mínir gerðu góða ferð til akureyrar fyrr í kvöld og unnu þá með 12 marka mun eða 34-22 :) svo haukarnir hirtu 2 stig af akueyringum.

Næstu leikir hjá haukum er 4.des kl.19:00 á ásvöllum, HAUKAR-Hk karlar og næsti leikur hjá stelpunum er 6.des er á útivelli grótta-HAUKAR kl.16:00 á seltjarnarnesi.

ÁFRAM HAUKAR :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.11.2008 23:10:32 / Haukadís

Haukablogg

http://www.haukar.is/images/stories/Handbolti/2008-09/hanna%20g.jpg Haukastelpurnar mínar eru komnar áfram í 8 liða úrslit í Eimskipsbikarnum eftir sigur á ÍR í austurbergi á þriðjudagskvöld, þær unnu leikinn 52-14 og staðan í hálfleik fyrir haukum var 30-3 hahah :) Og Hanna Guðrún skoraði hvorki meira né minna en 27 mörk :)

En Haukastrákarnir mínir eru líka komnir áfram en þeir unnu líka ÍR í austurbergi þriðjudagskvöld 32-24 :)

En á morgun er sjónvarpsleikur á milli 2 efstu liðanna í n1 deild kvenna stjarnan-haukar :)
ÁFRAM
HAUKAR

Annars er það að frétta af mér, að ég er búin að losa mig við veirusýkinguna sem ég var með í hálsinum, mér líður þokkalega vel núna :) Blakið er fallið niður, svo ég var að spá í að skella mér í ræktina í staðinn bara til að stunda einhverja hreyfingu :) En annars er ég bara á fullu í vinnunni og að passa lítil kríli :) Aðeins 40 dagar til jóla :) Svo ég er farin að hlakka til að skreyta og hlusta á jólalög :)

kveð í bili
ÁFRAM HAUKAR

kveðja Haukadís

» 1 hafa sagt sína skoðun

31.10.2008 13:59:47 / Haukadís

Jæja komin tími á blogg

Já verið þið sæl, loksins er komin tími á eitt stykki blogg, þótt ég hafi nú ekkert merkilegt að segja þannig séð, þá hlýt ég að getað bullað einhverju útúr mér heheh.

En allaveganna núna þá eru liðnar 4 vikur síðan að ég fór í laseraðgerð og þetta heppnaðist svo vel að ég sé bara ALLT :) ógeðslega ánægð með flottu sjónina mína :)

Svo ákvað ég að næla mér í eitt stykki Flensu, velkomin í heimsókn til mín, ég er búin að vera með hita síðan á miðvikudag og svo fékk ég það mikla hálsbólgu að ég á bágt með að kyngja munnvatni :cry: og þetta er svo sárt, ég er komin á sýklalayf og vona svo sannarlega að þetta fari að lagast, ég er að bilast, get lítið sem ekkert sofið, borðað mjög lítið, enda farin af mér 2 kíló, þar sem ég er bara að borða fljótandi. En blessuð flensan, hún skal lagast fljótt.

Það styttist í jólin, heilir 54 dagar til jóla, en ég byrjaði að telja niður í 130 dagar til jóla. Ég get alveg sagt ykkur að ég er pínu spennt, enda mikið jólabarn :)

En nóg af þessu, ég er farin í sturtu, þar sem mér er svo kalt brrrrr.....
kv.Haukadís veika :(


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.10.2008 19:06:34 / Haukadís

Nýkomin úr Laseraðgerð :)

Já ég er nýkomin úr Laseraðgerð á augum þar sem ég fékk 100% sjón :) Ég fór í aðgerðina á fimmtudaginn og tók aðgerðin einungis 50 mín með undirbúninginum. Ég var með 20% sjón eða -8.0 í gleraugunum og er núna með 100% sjón sem er náttla algjör snilld. Ég fór í aðgerðina hjá Lasersjón og eiga þeir mikið og stórt HRÓS skilið :)

http://www.lasersjon.is/picz/1007636508044.jpg Svona fer aðgerðin fram, nema í aðgerðinni sem ég var í, þá var bara einn læknir og ein hjúkrunarkona. Maður er semsagt vakandi en maður finnur ekkert fyrir neinu. Algjör snilld.
Þannig að núna er Haukadísin gleraugnalaus :)


» 9 hafa sagt sína skoðun

28.09.2008 14:07:47 / Haukadís

Þetta helsta sem er í fréttum...

Í dag af mér er:

Ég er búin að  vera í c.a 3 vikur á Herbalife til þess helst að byggja mig upp, ég borða shake í morgunmat og í drekkutíma kl.15 upp í vinnu. Og tek inn allskonar töflur til að byggja upp vöðva og þol. Og hjá mér er bara einn nammidagur og það er laugardagur :)

 

http://ecx.images-amazon.com/images/I/41TQ5PREWRL._SL500_AA280_.jpg

 

Ég er byrjuð að æfa blak með því miður ekki alveg rétta liðinu en réttur litur allaveganna :) ég held ennþá í sama litinn, þetta kallast einhversskonar byrjendarblak og kom mér skemmtilega á óvart að þetta er ógeðslega skemmtilegt :)

 

Ég er enn að vinna á sama leikskóla og er reyndar ekki á leiðinni að fara neitt úr honum :) ég er líka enn að passa lítil börn :) síðan er líka handboltinn komin á fullt svo að ég er á fullu að fara á leiki :)

 

Ég keypti mér Sæti í áhorfendastúku Hauka seinustu helgi, fór síðan ég tvenna haukaleiki í gær og þar sá ég að sætið mitt er merkt mér :) Reyndar er ég ekki enn búin að víga það, en það kemur með næstu leikjum :)

 

Hef ekki meira að segja í bili,

verið dugleg að kommenta eða skiljið eftir spor í gestabókinni

Kveðja Haukadís sem á merkt sæti á ásvöllum :)

  • http://www.moreno-stone.co.il/playground/humor/photo/smile%20cat.jpg


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.09.2008 20:49:18 / Haukadís

Gamlar myndir :)

http://s3.frontur.com/img/3758/20080914204143_0.jpg 1956  http://s3.frontur.com/img/3758/20080914204146_1.jpg 1966

http://s3.frontur.com/img/3758/20080914204149_2.jpg 1978 http://s3.frontur.com/img/3758/20080914204154_3.jpg 1982

http://s3.frontur.com/img/3758/20080914204204_4.jpg 1984 http://s3.frontur.com/img/3758/20080914204209_5.jpg 1994

Svona leit maður út í gamla daga :) hvaða mynd finnst ykkur fallegust af mér ?




» 5 hafa sagt sína skoðun

01.09.2008 21:44:47 / Haukadís

Klukk, klukk

Ég var víst klukkuð af henni Beggu minni, ég verð þá bara að hlýða og taka þátt aftur í þessari könnun :)

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

1. Róló/gæsluvöllur í staðinn fyrir grasvinnu í unglingavinnunni :)
2. 10-11 afgreiðslustarf
3. Nóatún afgreiðslustarf + fylla á vörur
4. Leikskólinn Heiðarborg

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á

1. Svínasúpan
2. Stelpurnar
3. handboltaspólurnar mínar, bikarleikir og íslandsmót allt þegar að Haukarnir mínir hafa unnið titil :)  
4. Alvin and the chipmunks

Fjórir staðir sem ég hef búið á

·                                 Seljahverfið

·                                 grafarvogur

·                                 ekki fleiri staðir sem betur fer :)

                                
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar

                              

·                                 Grey´s anatomy

·                                 stelpurnar

·                                 ekki fleiri, enda horfi ég lítið á sjónvarp

 Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum

Mallorca
Danmörk
Berlín í þýskalandi
Flórída

 Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg

·                                 Myspace

·                                 Facebook

·                                 Barnaland

·                                 mbl.is

Fernt sem ég held uppá matarkyns

·                                 Hvítlauksleginn Humar

·                                 kjúklingabaunabuff og karrýsósa

·                                 Hamborgarahryggur

·                                 fiskur í raspi

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft

·              Les ekki bækur, hef litla sem enga þolinmæði í það, en jú ég les
               mikið af barnabókum fyrir börnin á deildinni minni :)

Fjórir staðir sem ég mundi helst vilja vera núna á

·                                 Á mallorca í sólbaði

·                                 hjá systur minni í u.s.a

·                                 heima hjá mér, heima er best

·                                 í verslunarleiðangi í u.s.a

Fjórir bloggarar sem ég klukka

·                                 Hulda

·                                 Olga

·                                 Freydís

·                                 Auður


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.08.2008 19:19:34 / Haukadís

Til hamingju ÍSLAND :)

Til hamingju ÍSLAND
með Glæsilegan árangur
í handbolta í Peking á
Ólympíuleikunum 2008 :)

http://www.mbl.is/sport/emhb08/fanar/42.gif

Ísland hafnaði í 2 sæti og tóku
því á móti Silfrinu í dag,
strákarnir Okkar eru
búinir að standa sig frábærlega
vel á þessu móti.

Til hamingju enn og aftur :*

http://www.mbl.is/frimg/4/76/476350.jpg


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.08.2008 23:09:36 / Haukadís

Gleði, gleði og Gay Pride

                       Myndir síðan í gær á Gay Pride :)

                                http://s3.frontur.com/img/3758/20080810224230_0.jpg 
                               http://s3.frontur.com/img/3758/20080810224247_1.jpg

Konan með fánana

              http://s3.frontur.com/img/3758/20080810224627_2.jpg
flottar
http://s3.frontur.com/img/3758/20080810224642_3.jpg

http://s3.frontur.com/img/3758/20080810224721_5.jpg
Pacas og Beggi
http://s3.frontur.com/img/3758/20080810230310_0.jpg
Bleikt

http://s3.frontur.com/img/3758/20080810230327_1.jpg
Bleikur bíll

http://s3.frontur.com/img/3758/20080810230339_2.jpg
Bleikur bílstjóri

http://s3.frontur.com/img/3758/20080810230410_4.jpg
bleikar buxur, takið eftir ég var að taka mynd af buxunum ekki rassinum :haha: heheh

http://s3.frontur.com/img/3758/20080810230355_3.jpg
Aðalmaðurinn á Gay Pride
Bleikur Páll Óskar :)
Flottastur


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.08.2008 20:28:07 / Haukadís

Í sumarfríi

Ójá ég er sko í áframhaldandi sumarfríi sem mun klárast næsta miðvikudag, og það verður fínt að koma aftur í vinnuna, farin að sakna barnanna (minna) :)

En já flottur dagur í dag 080808 fyrir þá sem eru að gifta sig í dag.

Það var æðislega gaman á mallorca, það var legið í sólbaði næstum því alla daga, borðað frostpinna til að kæla sig enda var brjálaður hiti var alltaf 33 stiga hiti og + hitinn var í nokkra daga 38-39 stiga hiti og það var OF heitt, en samt alltaf gaman að koma til mallorca og ég ætla að fara aftur á næsta ári :)

Við fórum í rennibrautargarð þann stærsta á mallorca sem heitir Aqualand og það var virkilega mikið fjör, komumst í næstum allar rennibrautirnar og ég var nú þrusugóð að vilja fara alla leið upp í sumar rennibrautir, því ég er svaka lofthrædd, var farin að ýminda mér að stigarnir myndu hrynja þegar að ég var efst uppi. Úfff erfitt en mjög gaman í sumum rennibrautum, verst bara hvað biðraðirnar voru langar og það var svo brennaheitt á gangstéttunum og líka mikill hiti úti.

Hér koma nokkrir punktar sem gerðist í ferðinni, eða um hótelið/ströndina

  • 27.júlí lézt eldri maður í sjónum á ströndinni okkar, hann fékk hjartaáfall og það voru íslendingar sem komu fyrst að honum, en maðurinn sjálfur var ekki íslendingur.

Rut vinkona mín sem var með mér á mallorca drukknaði næstum því í einni sundlaug í rennibrautargarðinum, í svona laug sem er með öldur í gangi og sumir hlusta bara ekki á mann og svona gerist stundum, en það kom sundvörður henni til bjargar.

Ég fékk 2 moskítóflugnabit í allri ferðinni.


 

við byrjuðum á að bera á okkur sólarolíu á 8.degi ferðarinnar.


 

  • löbbuðum í 36 stiga hita í búðir sem voru í 35 mínútna fjarlægð og vorum í 3 tíma í að skoða og kaupa allskonar dót.


 

  • Hótelið Alcudia Pins tekur 2000 manns og eru því 9 hótel sem liggja þar saman.


 

  • Við fengum æði fyrir túnfisk pizzu :)


 

  • Og þeir á spáni syngja þetta lag höfuð herðar hné og tær svona: höfuð herðar hné og tær hné og tær, höfuð herðar hné og tær hné og tær, snúa í hringi og hoppa í loftið, höfuð herðar hné og tær hné og tær.

Það var maður um 40 tugt sem bað konu sinnar að gifta sér, og þetta var á þeim tíma sem kvöldskemmtunin á hótelinu átti að hefjast en þá bað maðurinn um að fá að biðja til konu sinnar og hann fékk að gera það á sviðinu fyrir framan 2000 manns c.a og konan sagði að sjálfsögðu já.

Svo aðþví að við vorum svo sætar þá voru það sætu barþjónarnir sem gáfu okkar ísa eitt kvöldið og sleikjó hehehe :) Geðveikislega sætir barþjónar.

Það leið næstum yfir mig í 2.skipti. Vorum búnar að vera lengi í einu á sólbekkjunum að mér var farið að líða virkilega illa og svo komst ég ekki upp á hótel herbergi þar sem ég var með yfirlið á háu stigi en komust loks svo upp á herbergi eftir langa setu á gólfinu.

En já eitt ekki má gleyma skónnum mínum sem ég lét systir mína kaupa fyrir mig úti í u.s.a þeir eru af gerðinni Ascis og eru súper flottir hlaupaskór, þeir kosta svo brjálæðislega mikið hér og helmingi ódýrari úti, þetta er víst glæný týpa á þessum skóm :) ætli þessir skór koma ekki til íslands eftir c.a 1 ár

Þannig að ég ætla að breytast í hlaupadís

-kveðja Haukadísin alltaf á leiðinni út að hlaupa


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.08.2008 18:27:56 / Haukadís

Þú veist að það er 2008 ef.....

1. Þú ferð í Partý og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.

2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.

3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er að því þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á MinnSirkus .

4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta bara á takkann á sjónvarpinu.

6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.

7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.

8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.

9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.

10. Þú virkilega skrollaðir tilbaka til að athuga hvort þar væri númer fimm.

11. Svo hlærðu af heimsku þinni.

12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu áframfæri einhverstaðar EF þú féllst fyrir þessu ... Aha ekkert svona fyrst að þú féllst fyrir þessu.

Sendu þetta á vini þina, á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar innan 2 mínútna og 14 sek eða minna og morgundagurinn þinn verður besti dagur sem þú hefur upplifað .. hingað til!

En, ef þú bíður of lengi,mun það ekki skipta neina því hverjum er ekki sama svona lista ... En vinir þínir munu missa af frábæri skemmtun

Stal thessu af blogginu hennar Beggu minnar, thetta er algjor snilld :)
Betra ad hafa eitthvad blogg hér á thessari sídu en ekki neitt, thví ég kem med blogg thegar ad ég kem heim til íslands. Vika í Gay pride, og aetla ég ad sjálfsogdu ad fara í 2.skipti :) thetta verdur orugglega fjor eins og í fyrra.


kvedja frá mallorca :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 30
Klukkan
Myndir 2006 ♥
Myndir 2005 ♥